11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í D-deild Alþingistíðinda. (3066)
118. mál, rannsókn veiðivatna
Atvinnumálaráðherra (MG):
Það, sem jeg sagði áðan, var aðallega miðað við það, að jeg taldi rjettara að láta innlendan mann sitja fyrir þessu starfi, mann, sem jeg hefi álit á og lagt hefir sig eftir þessum fræðum. Jeg mælti ekki á móti rannsóknum, heldur viðurkendi nauðsyn þeirra. Nú hefi jeg fengið að vita síðan jeg talaði áðan, að Pálmi Hannesson lýkur prófi sínu í júnímánuði, og verður hann þá atvinnulaus í sumar. Jeg viðurkenni, að þó hann taki gott próf, vantar hann praktiska þekkingu. En svo hlýtur að verða hvenær sem hann byrjar að starfa. Það eru ekki andmæli gegn manninum, þó hann vanti praktiska æfingu við þessar athuganir. Það er vitanlegt, að hann hefir lagt stund á þessi fræði og notið til þess styrks frá Fiskiveiðasjóði. Jeg hefi að vísu ekki umboð til þess að sækja um þetta starf fyrir Pálma Hannesson, en jeg vona þó, að hann fái þessar rannsóknir síðar, því jeg get ekki annað ætlað en að hann sje til þess mjög vel fær. Að einu leyti stendur dr. Reinsch að vísu betur að vígi. Hann hefir góð verkfæri til rannsóknanna, en þau mundi Íslendingurinn sennilega einnig geta fengið sjer, ef þau eru ekki því dýrari. Hann er fátækur maður og sjálfsagt skuldugur, er hann kemur frá prófborðinu, og því atvinnuþurfi.
Jeg skal að vísu ekki mæla á móti þessari till. af miklum krafti, en jeg tel þó eðlilegra, að hr. P. H. takist þetta á hendur.