10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í D-deild Alþingistíðinda. (3295)
115. mál, sjúkratryggingar
Flm. (Jón Baldvinsson):
Jeg leyfi mjer að vænta þess, að þessari till. verði nú vísað til síðari umr. Jeg skal geta þess til leiðbeiningar þeim, sem kynnu að halda, að hjer sje um eitthvert milliþinganefndarbákn að ræða, að kostnaðurinn er miðaður við 200 kr. til hvers þeirra þriggja manna, er nefndina eiga að skipa.