14.05.1926
Efri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í D-deild Alþingistíðinda. (3314)

115. mál, sjúkratryggingar

Sigurður Eggerz:

Frá mínu sjónarmiði er mál þetta mjög merkilegt, og því er eðlilegt, að alþýða fylgi því með mestu eftirtekt. Mjer finst, að með þáltill. sje um svo lítinn kostnað að ræða, að jeg mun með mínu atkv. stuðla að því, að málið nái fram að ganga.