06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 700 í D-deild Alþingistíðinda. (3351)

112. mál, húsmæðraskóli að Hallormsstað

Sigurður Eggerz:

Jeg hefi áður sýnt, að jeg hefi viljað greiða fyrir skólum eins og þessum. Nægir að minna á Staðarfellsskólann. Mjer skilst af orðum hæstv. atvrh. (MG), að veita þurfi athygli skólanum fyrir norðan jafnframt þessum, og sting jeg því upp á, að málinu sje vísað til mentmn. Þó tími sje orðinn naumur, geri jeg ráð fyrir, að hún hafi tóm til að athuga málið, og svo geti það komið aftur fyrir deildina.