14.05.1926
Neðri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í D-deild Alþingistíðinda. (3370)
89. mál, eftirgjöf á skuld
Fyrirspyrjandi (Jón Auðunn Jónsson):
Mjer hefir borist fyrirspurn um það frá þrem kjósendum mínum, hvort sá orðrómur væri rjettur, sem gengið hefir víða um Vesturland og líklega víðar, að fjármálaráðherra hafi gefið Kaupfjelagi Reykjavíkur upp skuld við Landsverslun, jafnvel gegn tillögum forstjóra Landsverslunar. Jeg taldi þetta mjög ólíklegt, en sagði, að jeg skyldi bera fram fyrirspurn um þetta til hæstv. fjrh. (JÞ). Þar sem orðrómur þessi hefir flogið mjög víða, þá þótti mjer rjett að gefa hæstv. fjrh. (JÞ) ástæðu og tækifæri til þess að svara þessu hjer í deildinni.
Það mætti í sambandi við þetta minnast á margt annað, en þó mun jeg sleppa því að sinni, til þess að tefja ekki tímann. En benda vil jeg þó á það, að mjer og öðrum þdm., sem flutt höfum hjer till. um að gefa fátækum hreppsfjelögum upp hluta af skuldum þeirra við ríkið, hefir verið legið á hálsi fyrir slíkt og till. okkar taldar nærri því ósæmilegar. Því fróðlegra er að fá upplýsingar um þetta mál. Því jeg hygg, að í þessum verslunarrekstri ríkisins hafi verið látið af hendi á ýmsan hátt meira fje en svaraði því, þótt þessum hreppum hefðu verið gefin upp nokkur þús. kr. Annars skal jeg ekki fara lengra út í málið, þar sem svo er liðið á fundartímann og komið að þinglokum.