22.03.1926
Sameinað þing: 3. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (3384)

Lát ekkjudrotningarinnar

forsætisráðherra (JM):

Hans hátign konungurinn hefir lagt fyrir mig að tilkynna hinu háa Alþingi lát móður konungs, hennar hátignar ekkjudrotningar Lovísu, Jósefínu, Eugeníu, ekkju Friðriks konungs hins áttunda. Hún andaðist eftir tveggja daga legu úr lungnabólgu síðasta laugardagskvöld, 20. þ. m.

(Þingmenn hlýddu standandi á tilkynningu forsætisráðherra).