16.03.1926
Efri deild: 29. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 902 í B-deild Alþingistíðinda. (378)

68. mál, stýrimannaskólinn

Forsætisráðherra (JM):

Um þetta litla frv. þarf ekkert annað að segja en vísa til greinargerðarinnar. Hjer er aðeins farið fram á að bæta inn í lög um stýrimannaskólann ákvæðum, sem af vangá hafa fallið úr — um stílagerð í dönsku og ensku. Er frv. borið fram eftir ósk skólastjóra stýrimannaskólans.