12.03.1926
Efri deild: 26. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

12. mál, kynbætur hesta

Forsætisráðherra (JM):

Út af ummælum hv. þm. A.-Húnv . um, að 3. gr. í frv. stjórnarinnar sje ógreinilega eða óskynsamlega orðuð, vil jeg geta þess, að ekki getur orkað tvímælis um, að hjer sje átt við eigendur graðhesta. Fæ jeg ekki annað sjeð en að þetta sje nægilega greinilega orðað, eftir almennri málvenju, og er því ekkert að orðalaginu.