16.04.1926
Efri deild: 52. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 982 í B-deild Alþingistíðinda. (514)

10. mál, bryggjugerð í Borgarnesi o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Jeg vil þakka hæstv. atvrh. fyrir þessar upplýsingar. Jeg skal ekki segja neitt um aðra staði en Vestmannaeyjar, en jeg þykist viss um, svo fremi sem þeir kostir, sem stjórnin býður Vestmannaeyjum, sjeu þeim ekki ofvaxnir, að þeim verði tekið fegins hendi, og það heldur fyr en síðar, því að það er öllum kunnugt, hver bagi er að því, hvað höfnin þar er grunn.