26.02.1926
Efri deild: 14. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í B-deild Alþingistíðinda. (523)

20. mál, bankavaxtabréf

Forseti (HSteins):

Jeg skal taka það fram, að hv. þm. hafa í umræðunum um þetta mál farið langt út fyrir efnið. Umræðurnar hafa aðallega snúist um bankana og seðlaútgáfuna. Þetta er mjög óviðeigandi, og mun jeg ekki leyfa slíkt framvegis, en skora á hv. þm. að halda sjer við efnið.