13.03.1926
Efri deild: 27. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1021 í B-deild Alþingistíðinda. (540)
20. mál, bankavaxtabréf
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Síðan frv. þetta var til 2. umr. hjer í hv. deild, hefir fjhn. á ný athugað sumar af þeim brtt., er þá lágu fyrir, og sömuleiðis þá brtt., sem tekin var aftur við 2. umr. Nefndin getur fallist á að breyta 1. gr. frv. þannig, að ef tveir sjeu flokkar veðdeildarbrjefa, þá megi hvor vera að upphæð 3 milj. kr., í stað 2½ milj. kr. Og vegna þess, að nefndin vildi ekki, að það gæti orðið ágreiningsatriði, hvor upphæðin væri ákveðin, hefir hún nú tekið upp þessa breytingu og ber hana fram á þskj. 133, en lengra vill hún ekki fara í þessu efni.
Í staðinn fyrir brtt. þá, er tekin var aftur við 2. umr. um fyrirsögn frv., hefir fjhn. leyfa sjer að koma með nýja brtt. á þskj. 133, og er það heiti á flokkunum, sem þar er nefnt, í samræmi við eldri löggjöf um sama efni, þannig, að í staðinn fyrir „bankavaxtabrjef“ komi: „nýja flokka (seríur) bankavaxtabrjefa“.
Vænti jeg svo þess, að hv. deild geti fallist á brtt. og samþykki frv. með þeim.