30.04.1926
Efri deild: 63. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (594)

70. mál, veiting ríkisborgararéttar

Sigurður Eggerz:

Jeg greiddi atkvæði á móti þessum lið, þegar málið var hjer til umræðu síðast; en þar sem jeg er sannfærður um það, að hv. þm. Vestm. (JJós) muni ekki hafa beðið um þennan frest, nema því aðeins að vera viss um, að hjer væri eitthvað athugavert, finst mjer, að hv. deild geti ekki neitað að verða við þessum tilmælum, og satt að segja á jeg erfitt með að skilja það kapp, sem lagt er á það, að málið verði ekki tekið út af dagskrá.