30.04.1926
Neðri deild: 66. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1069 í B-deild Alþingistíðinda. (617)

85. mál, ríkisborgararéttur

Forsætisráðherra (JM):

Jeg get verið þakklátur hv. nefnd fyrir skjóta og góða afgreiðslu þessa máls, því jeg hefi ekkert sjerstaklega á móti brtt. nefndarinnar, þó jeg hinsvegar telji hana óþarfa, eins og orðabreytingu þá, sem gerð var á frumvarpinu í Ed. Sje jeg því ekki ástæðu til að senda frumvarpið milli deilda vegna þessarar brtt. Væri heppilegast, að hún yrði ekki samþykt.