08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (710)

7. mál, fræðsla barna

Pjetur Ottesen:

Örstutt athugasemd út af ummælum hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ). Það er ekki í sambandi við afstöðu mína til þessa máls, að jeg hefi hreyft andmælum gegn þessari breytingu Ed., heldur í samræmi við margyfirlýstan meiri hluta þessarar hv. deildar, og vísa jeg hjer með öllum aðdróttunum hv. þm. í minn garð heim til föðurhúsanna. Finst mjer ekki ástæða fyrir deildina að veikja afstöðu sína til þessa atriðis með því að samþykkja þetta nú, en hinsvegar er það á hennar valdi, hvað gert verður, og afhendi jeg hjer með hæstv. forseta brtt. mína.