10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (812)
16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða
Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):
Viðvíkjandi því, sem hv. frsm. meiri hl. (JK) vjek nú að, býst jeg við, að sami verði ágreiningurinn og áður milli meiri og minni hl. allshn.
Hvers vegna skyldi það vera í löggjöf nú, að karlmenn eru skyldaðir til að taka þátt í sveitarstjórn? Það er auðvitað gert vegna þess, að ekki missist mikilhæfustu mennirnir, sem mörgum öðrum störfum hafa að gegna og vilja því gjarnan vera lausir við þessi störf. Um konur er alveg sama máli að gegna; þær eiga og að hafa sömu skyldur og karlmenn, þar sem þær hafa sömu rjettindi.
Jeg skil ekki það ofurkapp, sem hlaupið er í menn út af þessu. Það virðist helst vera svo, sem einhver afturkippur sje kominn í jafnrjettið milli karla og kvenna um þátttöku í opinberum málum. Jeg hefi hlustað á margar ræður um þetta, og það, sem helst er fært á móti, eru aðeins yfirskinsástæður, t. d. að konur muni tefjast mikið frá heimilum vegna þessara starfa. En hví skyldi ekki mega nota krafta þeirra til þess að sinna þessum störfum? Mjer finst, að þær, alveg eins og karlmenn, geti tekið á sig þessar skyldur og sje ekkert á móti því, þótt þær þurfi að leggja á sig nokkurt starf.
Það er því enginn vegur, að minni hl. allshn. vilji fallast á brtt., og jeg vona, að hún verði feld, sjerstaklega þegar þess er gætt, að málinu er að öðrum kosti stefnt í voða.
Jeg á hjer brtt. á þskj. 559, sem eiga bæði við þskj. 67 og 520. Þegar málið var hjer til 2. umr., kom jeg fram með nokkrar brtt. við frv., og var aðalbrtt. við 1. gr. um aldurstakmarkið, að í stað „25 ára“ skyldi koma: 21 árs. Sú brtt. var feld hjer með nokkrum atkvæðamun. Nú sem jeg fram með brtt. um það, að aldurstakmarkið sje 22 ár, eða til vara 23 ár. Fyrir þessari brtt. eru hinar sömu ástæður og jeg bar fram við 2. umr. En að jeg hefi fært aldurstakmarkið upp, er gert til að vita, hvort menn vilji heldur á það fallast, því aðalástæðan gegn fyrri brtt. minni var sú, að 21 árs menn væru of ungir til að fá kosningarrjett.
Þá eru brtt. við 5. gr. frv. á þskj. 520. Þar kom jeg einnig fram með brtt. við 2. umr., er flestar vorn samþyktar, en jeg fór ekki fram á neina breytingu á kjörtímabili. Nú ber jeg fram brtt. þess efnis, að kjörtímabilið sje 4 ár og kosið á 2 ára fresti. Álít jeg sanngjarnt, að kjörtímabil í bæjarstjórn sje hið sama og á Alþingi og vænti þess, að hv. þdm. muni eins og jeg vilja hafa samræmi í þessu. Það hefði og kannske verið rjettast að koma fram með till. um það, að kosnir sjeu varamenn við hverjar kosningar, svo að ekki þurfi að fara fram ný kosning, þótt einhver fatlist á kjörtímabilinu. Með því móti yrði komið í veg fyrir, að hlutfall milli flokka raskaðist. En það er sýnt, að fatlist maður úr minni hluta og fari kosning fram, þá kemur meiri hlutinn þar að manni í staðinn.
Jeg vona, að brtt. fái fylgi hjá háttv. þdm., því þær eru til bóta.