12.05.1926
Efri deild: 73. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (907)

82. mál, hlunnindi handa nýjum banka

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg hefi verið bundinn við atkvgr. í hv. Nd. og hefi því ekki heyrt nema lítinn kafla úr ræðu hv. 3. landsk. (JJ). En í því kom ekkert nýtt fram, og þarf jeg því ekki að lengja umr.