17.03.1926
Neðri deild: 33. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (919)

74. mál, afnám gengisviðauka á vörutolli

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vil aðeins lýsa yfir því, að jeg er frv. þessu samþykkur, eins og hv. form. fjhn. gat um, og óska þess jafnframt, að það fái svo greiðan framgang, að það geti fengið staðfestingu konungs fyrir 1. apríl.