27.03.1926
Efri deild: 39. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (939)

74. mál, afnám gengisviðauka á vörutolli

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Jeg hefi eiginlega ekkert um þetta frv. að segja. Nefndin leggur einróma til, að það verði samþykt. Og verði mjer ekki gefið sjerstakt tilefni, þá mun jeg ekki orðlengja reitt um þetta frekar.