29.03.1926
Efri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (941)

74. mál, afnám gengisviðauka á vörutolli

Jónas Jónsson:

Jeg vildi aðeins útskýra það, að jeg skrifaði undir nál. með fyrirvara. En svo stóð á því, að jeg var því fyrir mitt leyti samþykkur, að frv. gengi lengra og tæki til fleiri tegunda, en eins og málinu er nú komið, gæti það tafið fyrir.