09.02.1927
Sameinað þing: 1. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (10)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 3. kjördeildar (BSv):

Þriðja kjördeild hefir athugað kjörbrjef þeirra Hjeðins Valdimarssonar og Magnúsar Kristjánssonar. Engar kærur hafa komið fram út af þessum kosningum, og leggur kjördeildin til, að þær sjeu báðar teknar gildar.