12.04.1927
Neðri deild: 53. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1089 í B-deild Alþingistíðinda. (1117)
21. mál, fjárlög 1928
Magnús Torfason:
Jeg hefi þá ánægju að flytja hjer ásamt hv. 1. þm. Reykv. (JakM) brtt. á þskj. 336 undir tölulið XXV, um 1000 kr. styrk til Jakobs Gíslasonar til framhaldsnáms í rafmagnsfræði. Vildi jeg leyfa mjer að kynna hv. þdm. ástæðuna fyrir því, að jeg flyt þessa brtt. Faðir Jakobs er Gísli læknir Pjetursson á Eyrarbakka, 10 barna faðir, sem lagt hefir mikið í sölurnar til þess að menta börn sín, sem eru sjerstaklega efnileg. Piltur þessi er einn af fjórum börnum, sem Gísli læknir hefir kostað til náms. Læknirinn er einn af mætustu embættismönnum þessa lands og kona hans hin mesta sæmdarkona í hvívetna. Börnin eru öll sjerstaklega vel uppalin, og er víst um það, að á fáum heimilum er börnum innrætt betra siðferði en þar. — Jeg get auðvitað beðið, meðan hv. 3. þm. Reykv. (JÓl) talar. — Pilturinn er greindur vel og stundar nám sitt af miklu kappi. Hann hefir stundað nám sitt í Kaupmannahöfn, bæði verkfræði og rafmagnsfræði, og hefir þegar tekið tvö próf, bæði með 1. ág. einkunn, og mun það vera næstum einsdæmi í þeim greinum. Að pilturinn er sjerlega mannvænn má að öðru leyti sjá á því, að hann hefir verið kjörinn formaður í íslenska stúdentafjelaginu í Kaupmannahöfn, og kemur hann þar svo vel fram, að menn hafa alls ekki viljað missa hann úr því sæti, enda hefir fjelagið blómgast mjög undir forystu hans. Jeg lít því svo á, að maður þessi sje eitt af þeim grænu trjám, sem skylt sje að hlúa að. Jeg vil einnig leggja áherslu á það, að pilturinn mun vera mjög mikið efni í góðan verkfræðing, ef hann aðeins verður styrktur til þess að geta lokið námi sínu. En í þeirri grein þarf hjer að vera valinn maður í hverju sæti. Í landi eins og Íslandi, þar sem alt er ennþá ógert af því, sem gera þarf af verklegum framkvæmdum, er það nauðsynlegt, að þessar stöður sjeu skipaðar vel hæfum mönnum. Með þessum orðum mæli jeg með þessari litlu fjárupphæð til þessa efnilega manns; og er jeg ekki í vafa um, að þessum 1000 kr. er með því sjerstaklega vel varið.