11.05.1927
Neðri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1656 í B-deild Alþingistíðinda. (1276)

21. mál, fjárlög 1928

Frsm. síðari kaflans (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg fjekk leyfi hæstv. forseta til þess að segja fáein orð. Skal geta þess, að nú hefir hæstv. atvrh. (MG) fengið 2 tíma hlje til þess að reyna að rjetta hlut sinn, en jeg get ánægður lýst yfir því, að samt sem áður hefi jeg engu við að bæta það, sem jeg hefi þegar sagt.