12.05.1927
Efri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1830 í B-deild Alþingistíðinda. (1368)

6. mál, fátækralög

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg lít svo á, að hjer sjeu fram bornar fleiri og margbrotnari skrifl. brtt. en forsvaranlegt er, og hætt við, að deildin átti sig ekki fyllilega á þeim. Jeg mun þó ekki synja afbrigða fyrir stjórnarinnar hönd, en finst rjett, að deildin sje látin skera úr.