05.05.1927
Neðri deild: 67. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2010 í B-deild Alþingistíðinda. (1545)

112. mál, Mosfellsheiðarland

Hjeðinn Valdimarsson:

Jeg vil leyfa mjer að bera fram þá till., að máli þessu sje vísað til stjórnarinnar til frekari rannsóknar. Jeg hygg, að allir aðiljar megi vel við það una, að stjórnin láti rannsaka þetta mál til hlítar og leggi svo gögnin fyrir Alþingi á ný.