05.03.1927
Efri deild: 20. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (163)

4. mál, iðnaðarnám

Forseti (HSteins):

Jeg skal taka þetta til athugunar. Þetta hefir tíðkast hjer svo á síðustu þingum, og hefir þetta verið gert með tilliti til kostnaðar við prentunina. En ef hv. deildarmenn vilja heldur hafa þetta á annan veg, þá mun hægt að lagfæra það.