15.02.1927
Neðri deild: 6. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2101 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)
24. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum
Flm. (Tryggvi Þórhallsson):
Háttv. þm. Borgf. (PO) og hv. 1. þm. Reykv. gerðu báðir að umtalsefni afstöðu mína um nauðsyn grískukenslu við guðfræðideild háskólans. Jeg fór ekki inn á þessa hlið málsins, heldur skírskotaði jeg til þess, sem fram hafði komið 1924. Jeg get gjarnan látið í ljós, að jeg sagði þá, að æskilegt væri, að guðfræðinemendur gætu átt kost á því að lesa nýja testamentið á frummálinu. Jeg álít það æskilegt, en ekki nauðsynlegt. En það er vitanlegt, að kennarar í guðfræðideildinni kenna aðeins 8–9 mánuði ársins og aðeins eina stund á dag. Hinsvegar eru þeir allir svo vel færir í grísku, að þeir gætu tekið að sjer þessa kenslu.
Í framsöguræðu minni 1924 gerði jeg grein fyrir hinni mótbárunni, um afnám latínukenslunnar, og sýndi fram á, að lítil nauðsyn væri á henni vegna rannsókna á sögu þjóðarinnar.
Hv. þm. Borgf. vjek að þál. frá 1924 og gat um tvö embætti, sem nú eru laus, embætti það, sem hjer er til umræðu nú, og fræðslumálastjóraembættið, og undraðist, að jeg skyldi ekki flytja líka frv. um að leggja fræðslumálastjóraembættið niður. Hugsi hann sig vel um, hlýtur hann að muna, að jeg tók upp í þá till. öll þau embætti, sem þá hafði á síðustu árum verið talað um að leggja niður. Gerði jeg það af því, að jeg áleit sjálfsagt, úr því slík till. kom fram, að ekki væri skipað í slík embætti, nema Alþingi legði fyrst sinn dóm á þau. Var ekki þar með sagt, að jeg væri með því að leggja þau öll niður. Og nú hefir það gott hlotist af þessari tillögu, að hv. þm. Borgf. getur í þessu sambandi borið fram tillögu um niðurlagning fræðslumálastjóraembættisins.
Hv. 1. þm. Reykv. kom meðal annars með þá ástæðu gegn frv. þessu, að yrði það að lögum, þá myndi reka að því, að enginn yrði til hjer á landi, sem fær væri um að kenna þessi fræði við háskólann. En jeg man ekki betur en síðasta þing veitti fje handa manni til að læra hebresku, og mig minnir grísku líka.
Mjer er ekkert kappsmál, hvort mál þetta fer heldur til mentmn. eða allshn. Jeg mun sætta mig við, þó að það fari til mentmn. En á þinginu 1924 var það í allshn.