26.02.1927
Neðri deild: 16. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í B-deild Alþingistíðinda. (193)

9. mál, réttur erlendra manna til að stunda atvinnu á Íslandi

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Frv. þetta er komið frá hv. Ed. og var flutt þar af stjórninni vegna þál., sem samþykt var í þessari háttv. deild í fyrra, um að setja lög um þessi efni. Frv. fjekk góðan byr í Ed., og svo vænti jeg, að verði einnig hjer. Sje jeg svo ekki ástæðu til að fjölyrða um það frekar, og óska, að því verði vísað til sjútvn. að umr. lokinni.