20.04.1927
Efri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (1959)

23. mál, járnbrautarlagning og virkjun Urriðafoss

Einar Jónsson:

Jeg stend upp aðeins vegna þess, að við 2. umr. var jeg með brtt., sem jeg tók aftur til 3. umr. Nú leyfi jeg mjer að óska, að þessi till. komi til atkvgr. að þessari umr. lokinni.

Jeg ætla ekki að rekja efni till., vegna þess að segja má, að hún komi ekki aðalefni þessa máls við og sje ef til vill álitin hreppapólitík, þá er jeg þó sökum kjósenda minna og eigin skoðana á þessu atriði skyldugur að bera hana fram og óska, að hún komi hjer með til atkv. hv. deildar.