12.02.1927
Efri deild: 4. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (222)

13. mál, uppkvaðning dóma og úrskurður

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Fyrir hönd hæstv. atvrh. (MG), sem er veikur, skal jeg einungis leyfa mjer, að því er snertir ástæður fyrir þessu frv., að vísa til athugasemdanna við það. Að lokinni þessari umr. leyfi jeg mjer að leggja til, að frv. verði vísað til allsherjarnefndar.