10.03.1927
Efri deild: 24. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í C-deild Alþingistíðinda. (2288)
75. mál, ölvun embættismanna, skipstjóra o.fl
Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):
Jeg gæti alveg á sama hátt sagt um hv. flm. (JJ), að hann hefði ekki lesið frv., því að hann hefir alveg gengið fram hjá meginatriðum frv. pegar hv. flm. (JJ) reynir að láta það líta svo út sem greinarmunur sje ekki fyrst og fremst gerður eftir því, hvort hlutaðeigandi borgari sje í þjónustu hins opinbera eða ekki, þá lætur hv. flm. (JJ) svo sem bann hafi ekki lesið fyrri hluta 1. gr. í frv., sem innilykur mestan hluta þeirra manna, sem frv. tekur til, en það þýðir þá menn, sem starfa í þjónustu hins opinbera, menn, sem ekki eru lauslega ráðnir, heldur taka mánaðarkaup. Hv. flm. (JJ) staðfesti nú þessa lauslegu þekkingu sína á frv. seinna, með því að segja, að jeg hefði haft rangt eftir sjer, en jeg skrifaði þetta orðrjett eftir hv. þm. (JJ), að frv. nái jafnt til starfsmaima ríkisins og starfsmanna einkafyrirtækja. (JJ: Já, þessi liður, sem hjer er um að ræða). En um ákvæði bankalagafrv. ætla jeg að geyma að ræða, þar til það mál kemur á dagskrá.