23.03.1927
Neðri deild: 37. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í C-deild Alþingistíðinda. (2338)

62. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Frsm. minni hl. (Árni Jónsson); Jeg mótmæli því, að telja megi 1300 á móti 1700. Jeg hefi það eftir kunnugum manni, að þessir 5–6 hundruð kjósendur í Hafnarfirði, sem ekki hafa látið uppi álit sitt, sjeu yfirleitt á móti skiftingu. Það er því rjett, sem jeg sagði, að móti 7–8 hundruðum má telja 2200.