29.03.1927
Neðri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í C-deild Alþingistíðinda. (2346)

62. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Tryggvi Þórhallsson:

Viðvíkjandi þessari 13. gr., sem jeg aldrei hefi heyrt nefnda fyr, vil jeg segja það, að um þetta mál voru greidd atkvæði hjer á þinginu í fyrra, eins og hv. þm. (ÁJ) má muna, og höfum við þannig sýnt fylgi við þetta mál áður en þessi 13. gr. á að hafa orðið til.

Ef hv. þm. (ÁJ) hinsvegar vill gefa einhverjar sögulegar upplýsingar, vil jeg benda honum á, að hann ætti að setja þær undir innsigli og koma þeim fyrir uppi á landsbókasafni. Þar mundu þær verða vel geymdar.