28.02.1927
Neðri deild: 17. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (246)

12. mál, námulög

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vildi leyfa mjer að mega mælast til, að frv. þetta fái að ganga til 2. umr. og allshn. Það er stjfrv., sem gengið hefir greiðlega og óbreytt í gegnum hv. Ed., og vænti jeg, að það njóti sömu velvildar í þessari hv. deild.