05.04.1927
Neðri deild: 47. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í C-deild Alþingistíðinda. (2467)
69. mál, hvalveiðar
Hákon Kristófersson:
Jeg kann háttv. 1. þm. S.-M. þakkir fyrir afstöðu hans í þessu máli. Jeg get ekki komið auga á, hvað vakir fyrir mönnum með flutningi þessa frv. Það er alkunna, að þá atvinnuvegi, sem fyrir eru, vantar fje til framkvæmda. En þetta frv. hlýtur að leiða af sjer fjárframlög, nema því aðeins, að vinna eigi að hvalveiðunum með útlendu fjármagni, og þar af leiðandi hyrfi allur arðurinn út úr landinu.
Því hefir verið haldið fram áður, að hvalir væru drepnir hvort sem væri, og því væri ótilhlýðilegt af okkur að banna hvalveiðar. En jeg get ekki betur sjeð en að þetta frv. verði að eins til þess að gera aðstöðu útlendinga hægari, því að jeg býst ekki við því, að Íslendingar yrðu einir um þetta sjerleyfi, heldur mundi hið raunverulega sjerleyfi lenda í höndum útlendinga.
Að hið opinbera fari að reka slíka starfsemi, eins og vilji hv. 4. þm. Reykv. (HjV) virðist vera, liggur lengra frá, og verður víst ekki fyr en þjóðnýtingartímabilið mikla hefst. Sem sagt get jeg ekki fallist á þetta frv., þar sem jeg get ekki með mínum besta vilja sjeð, að það komi að öðru gagni en því, að við fengjum hval til neyslu í 3–4 ár.