05.05.1927
Efri deild: 66. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (2480)

69. mál, hvalveiðar

Ingvar Pálmason:

Jeg fæ ekki betur sjeð en að þetta sjeu sjerleyfislög, og mjer finst frágangurinn á þeim ekki eins tryggur og hann þyrfti að vera á sjerleyfislögum. Jeg vil því ráða háttv. deild frá að samþykkja frv. þetta. Mjer finst ekki ástæða til að deila hjer um friðun eða ófriðun, heldur beri að líta á sjerleyfishliðina. En þar sem hún er ekki svo trygg sem skyldi, þá legg jeg til, að máli þessu verði vísað til stjórnarinnar.