06.04.1927
Neðri deild: 48. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í C-deild Alþingistíðinda. (2508)

11. mál, útrýming fjárkláða

Frsm. minni hl. (Árni Jónsson):

Hv. meiri hl. hefir slegið fram því gaspri, að það væri vilji bænda, að færa böðunarmálið í sama horf og fyr hefir verið. Jeg held, að það væri rjett, að fá skýrt fram, á hverju hv. meiri hl. byggir þessa fullyrðingu. Og þegar hv. frsm. meiri hl. (HK) hefir gert grein fyrir því, skal jeg sýna fram á, að hann hefir rangt fyrir sjer.

Hv. frsm. meiri hl. sagði, að meiri hl. hefði lagt rækt við þetta mál. En jeg staðhæfi, að vissir menn úr sama hv. meiri hl. hafa lagt órækt við það, sem þeir hjeldu fram um þetta sama mál í fyrra.