10.02.1927
Efri deild: 2. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

Kosning fastanefnda

Forseti (HSteins):

Það er ekki rjett hjá hv. 1. landsk. (JJ), að þessu hafi ekki verið mótmælt áður. Því var mótmælt á síðasta þingi og var ekki tekið til greina þá, og verður ekki heldur gert nú, og er útrætt um þetta. (JBald: Á ekki að bera þennan úrskurð hæstv. forseta undir deildina?). Nei. (JJ: Hæstv. forseti treystir sjer betur til að fremja ranglæti en hv. deildarmönnum).