02.05.1927
Neðri deild: 64. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í C-deild Alþingistíðinda. (2701)

97. mál, gin- og klaufaveiki

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Mjer þykir það undarlegt, að hv. frsm. (ÁJ) segir, að jeg hafi tekið illa í þetta mál. Jeg svaraði annari fyrirspurn hans, en heyrði ekki hina, Jeg sagði, að jeg sæi mjer ekki fært að fara lengra en gert væri með reglugerðinni frá því í desember, og tók það fram, að þar væri svo langt gengið, að jeg teldi mig ekki hafa heimild til að ganga lengra.