02.05.1927
Neðri deild: 64. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í C-deild Alþingistíðinda. (2707)

97. mál, gin- og klaufaveiki

Pjetur Ottesen:

Jeg vil benda háttv. þm. Ak. á, að þótt talað sje um næma alidýrasjúkdóma í frv., mundi ákvæðið tæplega koma til greina um önnur lönd en þau, þar sem gin- og klaufaveiki er. Einmitt öll þau lönd, sem hingað mundu flytja ull eða dún, eru sýkt af veikinni.