18.05.1927
Efri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í C-deild Alþingistíðinda. (2743)

97. mál, gin- og klaufaveiki

Guðmundur Ólafsson:

* Hv. 6. landsk. (JKr) sagði, að það, sem jeg legði til málanna, um það, sem hjer er um að ræða, væri á lítilli þekkingu reist. Jeg skal fúslega játa það, að þekking mín á þessum málefnum er ef til vill ekki mikil. Hv. þm. (JKr) sagði einnig, að hjá þeim, sem eitthvað vildu gera í þessu máli, væri aðeins um fálm út í loftið að ræða. En sannleikurinn er sá, að hv. landbn. hefir ekki gert neitt.

*Ræðuhandr. ólesið af þm.