31.03.1927
Neðri deild: 43. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í C-deild Alþingistíðinda. (2800)

103. mál, atkvæðagreiðsla utan kjörstaða kjósanda við alþingiskosningar

Jón Kjartansson:

Jeg stend aðeins upp til þess að mælast til þess, að frv. þessu verði vísað til allshn. Frv. er á margan hátt stórgallað og þarf ítarlegrar rannsóknar við. Verði það felt að vísa málinu til nefndar, þá get jeg ekki greitt frv. atkv.