17.03.1927
Efri deild: 30. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í B-deild Alþingistíðinda. (291)
5. mál, iðja og iðnaður
Guðmundur Ólafsson:
Hv. 5. landsk. (JBald) lýsir því yfir, að öllum þyki þessi gjöld of há eins og þau eru ákveðin í frv. Þetta er ekki rjett. Öll deildin hefir samþykt frv. eins og það er. Það má líka geta nærri, hvort Iðnaðarmannafjelagið, sem samið hefir frv., hafi ekki athugað þessa hlið málsins. Menn eru ekki vanir, þegar svona stendur á, að athuga annað betur en einmitt gjaldahliðina. Nú hafa þrír hv. deildarmenn komið með ósamhljóða brtt. um þessi gjöld. Það sýnir, að sitt vill hver, og bendir ótvírætt í þá átt, að mest vit sje í því, sem stendur í sjálfu frv.