26.03.1927
Neðri deild: 39. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í C-deild Alþingistíðinda. (2929)

72. mál, fiskimat

Pjetur Ottesen:

Jeg vona, að það reiknist mjer ekki sem ræða nú við þessa umr., þó að jeg komi hjer fram með tilmæli til hæstv. forseta. Jeg vildi óska þess, að þeir menn, sem nú vilja taka til máls í þessu mikilsverða máli, þyrftu ekki að tala hjer yfir tómum stólum, því að það er tilgangslítið, og takist ekki hæstv. forseta að hóa þingheimi saman, þá óska jeg, að málið sje lekið út af dagskrá, þar til betur gengur. (KlJ og TrÞ: Alveg rjett!).