06.04.1927
Neðri deild: 48. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (301)

5. mál, iðja og iðnaður

Frsm. ( Jörundur Brynjólfsson):

Það má vel vera, að þetta sje ekki nógu ljóst orðað í brtt. nefndarinnar. En jeg hefi ekki getað borið þetta undir meðnefndarmenn mína og veit því ekki, hvernig þeir líta á það. Hinsvegar get jeg tekið brtt. aftur til 3. umr. og sje ekki annað en að frv. megi samþykkja eins og það er og vísa því áfram.