11.03.1927
Neðri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í C-deild Alþingistíðinda. (3046)

82. mál, einkasala á tilbúnum áburði

Flm. (Tryggvi Þórhallsson):

Þetta er í 3. skifti, sem frv. svipað þessu er borið fram í hv. deild. Tvær fyrstu greinar þessa frv. eru að heita má samhljóða frv., sem samþ. var í þessari deild í fyrra, og 3. gr. er eins og hún var í frv. því, er jeg bar fram í fyrra, en feld var úr í meðförum málsins.

Mjer virðist, að svo mikið hafi verið rætt um þetta mál á þingi áður, og í blöðum landsins, að óþarft sje að hafa nú um það langa framsögu. Vil jeg aðeins mælast til, að því verði vísað til 2. umr. og landbn.