11.03.1927
Neðri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í C-deild Alþingistíðinda. (3053)
82. mál, einkasala á tilbúnum áburði
Jón Kjartansson:
Jeg ætla ekki að blanda mjer inn í umræður um þetta mál, síst þar sem hv. þm. Str., formaður Búnaðarfjelags Íslands, hefir lofað að láta landbn. í tje skýrslur um þetta mál. Jeg vil ítreka, að hann gefi þessar skýrslur, enda þótt einn nefndarmanna telji það óþarft. Vegna annara þingmanna er það nauðsynlegt.
Það var eitt atriði í ræðu hv. 2. þm. Reykv., sem jeg varð ekki var við, að hv. þm. Str. svaraði. Hv. þm. (TrÞ) hefir skýrt frá því í blaði sínu, að búnaðarmálastjórarnir væru orðnir tveir, og hefðu þeir sömu rjettindi og sömu skyldur, er búnaðarmálastjóri nú hefir. Lítið er sagt um verkaskiftinguna annað en það, að annar eigi að sinna störfum út á við, en hinn inn á við. En af því að þeir hafa báðir sömu rjettindi og sömu skyldur sem búnaðarmálastjóri hefir nú, skilst mjer, að þeir eigi að hafa sömu laun, en vitanlega eru laun búnaðarmálastjóra hærri en laun ráðunauta. Þess vegna eiga laun ráðunauts að hækka samkvæmt því. Jeg hygg, að það láti nærri, að munur á launum búnaðarmálastjóra og ráðunauts sje 2000 krónur, auk þess sem búnaðarmálastjóri hefir ýms hlunnindi viðvíkjandi húsnæði o. fl., sem að sjálfsögðu ættu að koma hinum nýja búnaðarmálastjóra til handa.
Hv. 2. þm. Reykv. spurði rjettilega, samkvæmt hvaða heimild þetta væri gert. Ef hv. þm. Str. vill ekki svara þessu, vil jeg leyfa mjer að beina því til hæstv. atvrh. Mjer skilst, að hann hafi yfirstjórn þessara mála, og vil jeg því beina til hans, hvort þetta sje löglegt. Jeg hefi leitað í lögum búnaðarfjelagsins og ríkisins, en hvergi fundið, að búnaðarmálastjórar ættu að vera fleiri en einn. Mjer er sagt, að engar lagabreytingar hafi verið gerðar á þessu búnaðarþingi í þá átt, að búnaðarmálastjórar yrðu fleiri en einn, enda varð að gera slíka breytingu samkvæmt 19. gr. búnaðarfjelagslaganna.
Annars gæti þetta ástand, sem verið hefir í Búnaðarfjelagi Íslands, gefið fullkomna ástæðu til að rifja upp alla stjórn þess og stjórnarfyrirkomulag. En það verður þó ekki gert hjer, nema að örlitlu leyti, því jeg geri ráð fyrir, ef milliþinganefnd verður sett í þessi mál, að þá taki hún þetta til athugunar. En það sjá allir, sem hafa kynt sjer stjórnarfyrirkomulag Búnaðarfjelags Íslands, að þar er margt á annan veg en æskilegt væri. Fram til þessa hefir verið einn framkvæmdarstjóri, sem nefndur er búnaðarmálastjóri. Hann er valdlaus og ábyrgðarlaus. Nú eru búnaðarmálastjórarnir orðnir tveir. Næsta ár verða þeir e. t. v. orðnir þrír, og hitt árið fjórir o. s. frv., þangað til allir ráðunautarnir hafa verið gerðir að búnaðarmálastjórum. Ekki getur þetta greitt úr flækjunni.
Þá er talið, að æðsta vald í þessum málum sje hjá búnaðarþingi, en það kemur ekki saman nema annað hvert ár, og hvernig er þá hægt að ætlast til þess, að það geti haft nákvæmt eftirlit með störfum fjelagsins. Loks er þar þriggja manna stjórn, þar sem einn er kosinn af búnaðarþingi og tveir tilnefndir af landbn.-nefndum Alþingis.
Hjer er því öllum störfum svo vendilega ruglað saman, að rækilega er sjeð um, að allir sjeu ábyrgðarlausir og valdlausir.
Hv. þm. Str., formaður búnaðarfjelagsins, og hv. 2. þm. Árn. hafa talað um „pólitíska fulltrúa“ í stjórn Bf. Í. — þá, sem tilnefndir eru af landbn. Alþingis. Þessu leyfi jeg mjer að mótmæla. Jeg veit ekki til, að stjórnendur búnaðarfjelagsins eigi að vera málsvarar neins sjerstaks pólitísks flokks, eins og formaður Bf. Í. vill nú halda fram. En sje svo, þá tel jeg þessum málum illa komið. Búnaðarmálin eru ein aðalgrein þjóðmála vorra. Skiftir það því miklu, hvernig með þau mál er farið. Jeg tel það því ósæmandi með öllu, ef þessi mál verða látin fljóta áfram á kviksendi stjórnleysis og ábyrgðarleysis, eins og verið hefir.
Jeg vænti því, að þessi mál verði nú tekin til rækilegrar meðferðar. Stjórnarfyrirkomulaginu í Bfj. Ísl. þarf að gerbreyta. Þar þarf að vera framkvæmdastjóri, er hefir vald og fullkomna ábyrgð á sínum gerðum.
Að síðustu vil jeg endurtaka fyrirspurn mína til hæstv. atvrh., hvort það sje lögum samkvæmt, að búnaðarmálastjórarnir sjeu tveir, og ef svo er, hvort það sje þá ekki eins hægt, að þeir sjeu 1 eða 5, og jafnvel að allir ráðunautarnir verði gerðir að búnaðarmálastjórum?