19.02.1927
Efri deild: 9. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í D-deild Alþingistíðinda. (3152)
33. mál, veðurfregnir frá Grænlandi
Flm. (Jónas Jónsson):
Til þess að fyrirbyggja misskilning skal jeg geta þess, að mjer var kunnugt um, að veðurstofan hafði gert alt sem hún gat til þess að fá máli þessu framgengt. En jeg álít, að stjórnin standi betur að vígi með að hrinda þessu máli fram, og því höfum við flm. borið till. fram.