13.05.1927
Sameinað þing: 10. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í D-deild Alþingistíðinda. (3369)

132. mál, milliríkjasamningar

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg skal lýsa yfir því, að stjórnin er því samþykk, að þessir samningar við hin Norðurlandaríkin verði teknir upp, og verði till. samþ., þá mun stjórnin taka upp samningaumleitanir við hin Norðurlandaríkin, á þeim grundvelli, sem frá er greint í sjálfri till. Munu slíkir samningar auðvitað gerðir að því tilskildu, að þeir öðlist ekki fullgildingu fyr en þeir hafa verið lagðir fyrir Alþingi og samþyktir þar.