08.04.1927
Neðri deild: 50. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í D-deild Alþingistíðinda. (3402)

102. mál, rannsókn á hafnarbótum og vörnum gegn snjóflóðum

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vil leggja það til, að máli þessu verði vísað til hv. allshn., og vona, að hv. flm. (JAJ) hafi ekkert á móti því. Jeg lít svo á, að málið þurfi að rannsaka í nefnd, vegna þeirrar skoðunar á þessum stað, sem fram fór árið 1916, enda þótt hv. flm. (JAJ) geri lítið úr henni.