26.02.1927
Neðri deild: 16. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í D-deild Alþingistíðinda. (3434)

42. mál, milliþinganefndir fyrir tolla- og skattalöggjöf

Jakob Möller:

Hv. þm. Str. (TrÞ) fór ekki rjett með orð mín. Jeg sagðist ekki þekkja þá frjálslyndu stjórnmálastefnu, sem fylgdi fram einkasölu og verndartollum. Um hitt, hvort einstakir menn í frjálslyndum flokkum kynnu að hafa sjerstöðu í þessu, sagði jeg ekkert. Eða þekkir hann nokkurn frjálslyndan flokk, sem fylgir fram einkasölu og verndartollum? (TrÞ: Já, þann íslenska).